Talnaspekingur kirkjunnar

Ríkiskirkjupresturinn Þórhallur Heimisson fullyrðir á bloggsíðu sinni að:

..um 90% Íslendinga játa kristna trú. #

Mér finnst ótrúlegt hvernig hann getur haldið þessu fram. Árin 1986 og 2004 fóru fram mjög ítarlegar kannanir á trúarlífi Íslendinga og í þeim var einmitt spurt: „Játar þú kristna trú?“ (eða fólki var gefinn sá kostur að velja þann möguleika) og þeir sem sögðu „Já“ voru 40%-50%.

Þórhallur er þarna líklega að vísa til skráningar fólks í trúfélög, en dettur nokkrum heilvita manni það í hug að opinber trúfélagsskráning jafngildi trúarjátningu? Er allt fólkið sem er ekki í skráðum trúfélögum trúleysingjar? Auðvitað ekki. Er allt fólkið sem er skráð í ríkiskirkjuna (eða önnur kristin trúfélög) kristið? Auðvitað ekki.

Þegar maður sem veit af þessum könnunum endurtekur aftur og aftur að „um 90% Íslendinga játa kristna trú“ þá verð ég að viðurkenna það að mér finnst líklegt að honum sé sama um sannleikann í þessum efnum og kemur bara með þessa röngu fullyrðingu í áróðursskyni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Getur maður nálgast þessar kannanir á netinu einhversstaðar?

Björn I (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 00:29

2 identicon

Fann þetta sjálfur, bæði skrána sjálfa á :

www.kirkjan.is/skjol/truarlif_islendinga_2004.pdf

sem og Vantrúarútgáfuna á :

www.vantru.is/skrar/Truarlifislendinga_vantru.pps

Ég reikna með að þú sért að tala um þessa könnun.

Björn I (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 00:47

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Já, þetta er könnunin frá 2004, sú frá 1986-7 er að ég ekki til á netinu en þar völdu 37,1% aðspurða annað hvort eingöngu eða meðal annars svarmöguleikann "Ég er trúaður/trúuð og játa kristna trú." við spurningunni "Hver af eftirfarandi fullyrðingum kemst næst trúarafstöðu þinni?" bls 26 og þetta er í ritröð guðfræðistofnun HÍ frá 1990.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 27.12.2009 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband