Kaþólikkar eru ekki kristnir

…að minnsta kosti samkvæmt ríkiskirkjuprestinum Þórhalli Heimissyni. Á heimasíðu ríkiskirkjunnar var birtur pistill eftir hann þar sem að hann segir:

Það er þess vegna ekki hægt að vera bæði kristinn og hómófób.#

Þórhallur útskýrir ekki hvað það sé að vera “hómófób”, en mér finnst afskaplega líklegt að þessi grein úr trúfræðsluriti kaþólsku kirkjunnar flokkist sem hómófóbía af honum:

 
2357. Samkynhneigð vísar til sambands milli karla og milli kvenna sem með algjörum eða ráðandi hætti laðast kynferðislega að persónum af sama kyni. Það hefur tekið á sig ýmsar myndir í aldanna rás og á hinum mismunandi menningarsvæðum. Sálræn tilurð þess hefur að mestu leyti verið óútskýrð. Með því að styðjast við heilaga Ritningu, er lýsir samkynhneigðum athöfnum sem alvarlegri siðspillingu, [141] hefur erfikenningin ávallt lýst því yfir að "samkynhneigð athöfn feli í sér eðlislæga röskun." [142] Hún stríðir gegn náttúrulögmálinu. Hún útilokar að kynlífið kveiki nýtt líf. Hún sprettur ekki af sannri gagnkvæmri fyllingu, tilfinningalegri og kynferðislegri. Hana má ekki undir nokkrum kringumstæðum viðurkenna. #
 

Þannig að allir rétttrúaðir kaþólikkar eru sem sagt ekki kristnir samkvæmt Þórhalli. Auk þess er þetta líklega ríkjandi viðhorf hjá öðrum kristnum hópum eins og rétttrúnaðarkirkjunni og hvítasunnumönnum. Meirihluti manna sem eru “kristnir” í heiminum eru því alls ekki kristnir. Eru engin takmörk fyrir því hvað Þjóðkirkjuprestar geta bullað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér þykir þetta nú ekkert furðuleg staðhæfing.  Það hlýtur að vera hægt að setja mörk á því hver er kristinn og hver ekki (þó þetta sé kannski ekki rétti mælikvarðinn).  Það eru ekki allir sem segjast trúa á Biblíuna kristnir.

Reyndar eru heldur ekki allir þjóðkirkjuprestar heldur endilega kristnir.  Líklega er enginn kristinn nema sá sem hefur fæðst að nýju, því án þess kemst enginn inn í himnaríki.

Þú þekkir nú eflaust versinn sem fjalla um þá sem gerðu kraftaverk í nafni Jesú, en hann segist ekki þekkja þá.  Varla eru þeir kristnir...

jamm (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 22:17

2 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

jamm: Hvernig "kristinn" er skilgreint er að mínu mati aðallega spurning um valdatafl hinna ýmsu kristnu trúflokka. Það er ekki neitt hlutrænt þarna úti sem greinir á milli "kristinn" og "ekki-kristinn". Þetta er bara merkimiði sem er barist um.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 27.5.2010 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband