2.9.2009 | 15:41
Hvað eru stjórnvöld að pæla?
Þegar ég las þessa frétt mundi ég eftir fleygum orðum ríkiskirkjuprestsins Sigurðar Árna Þórðarsonar sem hann lét falla eftir flóðbylgjuna miklu árið 2004:
Hversu góð eru þau stjórnvöld, sem hafa leyft byggingar við strendur rétt við flekaskil? #
Nú spyr ég bara í anda Sigurðar Árna: Hversu góð eru þau stjórnvöld sem leyfa byggingar á Java-eyju?
Samkvæmt mínum heimildum búa 124 milljónir manns á þeirri eyju. Af hverju flytur þetta fólk ekki bara á einhvern öruggan stað þar sem engar náttúruhamfarir eru?
23 lík fundin í Indónesíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Afhverju flytjum við bara ekki frá Íslandi til staðar þar sem engar náttúruhamfarir eru og engin kreppa? :)
Jónas Rafnar Ingason, 2.9.2009 kl. 16:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.