Aðkoma Karls Sigurbjörnssonar að „biskupsmálinu“

Samkvæmt DV ætlar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir að „taka mál sitt gegn kirkjunni upp aftur“. Reyndar er Ólafur Skúlason, meinti brotamaðurinn, látinn, þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað hún gæti gert. Veit ekkert um lögfræði. En það er rétt að minna á aðkomu Karls Sigurbjörnssonar, núverandi æðsta biskups ríkiskirkjunnar að málinu:

 

Einn þeirra sem tengdust inn í mál kvennanna gegn séra Ólafi biskupi á sínum tíma var séra Karl Sigurbjörnsson, þá prestur og nú biskup. Samkvæmt frétt DV 6. mars 1996 beittu tveir prestar, þeir Hjálmar Jónsson, sem þá var þingmaður en er nú dómkirkjuprestur, og Karl, núverandi biskup, áhrifum sínum til að fá konurnar sem ásökuðu Ólaf biskup um kynferðislega áreitni til að falla frá málum sínum. Í fréttinni segir meðal annars að prestarnir tveir hafi átt tíða fundi með konunum og að í kjölfar þeirra hafi ein kvennanna dregið mál sitt til baka. „Munu prestarnir meðal annars hafa lagt mikla áherslu á kostnaðinn sem því fylgi að standa í málarekstri gegn biskupi,“ segir í fréttinni. 

Séra Karl vildi ekkert tjá sig um þetta á þeim tíma en ónafngreindur prestur sem DV ræddi við á þeim tíma sagði að miklu „handafli“ hefði verið beitt af hálfu biskupsmanna til að þagga það niður. [Frá DV.is]

Tveimur árum seinna varð Karl hækkaður í tign í ríkiskirkjunni. Ég skil ekki hvers vegna fólk sættir sig við þetta. Það ætti að skrá sig úr Þjóðkirkjunni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Það segir okkur augljóslega að Gvuð kann ekki að ráða starfsfólk.

Matthías Ásgeirsson, 22.5.2009 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband