Spurning til kirkjunnar

Ég var að enda við að senda ríkiskirkjunni spurningu, það verður afskaplega gaman að sjá hvort ég muni fá svar. Hérna er spurningin:

Við lestur á Matteusarguðspjalli, þá sýnist mér Jesús spá því að heimsendir muni koma á tímum samtímamanna hans (Mt 16.28 og Mt 23.36). Er ég að misskilja þessi vers?

Eins og ég hef áður bent á þá hefur þegar einn ríkiskirkjuprestur viðurkennt að þetta er rétt skilið hjá mér. Guðfræðiprófessorinn Einar Sigurbjörnsson hefur líka viðurkennt að þetta er réttur skilningur. Hver veit nema við fáum enn einn ríkiskirkjustarfsmanninn til þess að viðurkenna að Jesús hafi verið falsspámaður?

Kannski ætti ég að senda aðra spurningu: Af hverju starfar fólk sem trúir því að Jesús hafi verið falsspámaður enn sem prestar hjá ríkiskirkjunni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Jesús gleymdi bara að gera grein fyrir skekkjumörkum sínum, heimsendir á næstu 10-10.000 árum!

Kristinn Theódórsson, 7.5.2009 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband