Hin óskeikula biblía

Ég skrifaði grein í dag á Vantrú vegna ummæla ríkiskirkjuprests nokkurs. Hann sagði meðal annars:

Biblían er innblásið orð Guðs, og sem slík er Biblían fullkomin, áreiðanleg, óskeikul og sönn. #

Já, þetta er hvorki Gunnar í Krossinum né Snorri í Betel. Þetta er þjóðkirkjupresturinn Gunnar Jóhannesson.

Það eru svo margar spurningar sem mig langar að spyrja Gunnar (ekki í Krossinum, heldur þjóðkirkjuprestinn) að, er það til dæmis satt og rétt að Gyðingar séu „guði eigi þóknanlegir og öllum mönnum mótsnúnir“ (1 Þess 2.15)? Er það satt og rétt að guðinn hans hafi fyrirskipað þjóðarmorð eins og fram kemur á mörgum stöðum í Gamla testamentinu? Eiga konur að vera undirgefnar eiginmönnum sínum? Sendi guð birnur til að brytja í spað 42 stráka?

Ég lét prestinn vita af greininni, nú er bara að sjá hvort hann svari. Mér finnst mjög líklegt að hann geri það ekki. Gunnar má reyndar eiga það að hann hefur verið duglegri en aðrir prestar við að reyna að röksyðja trúarskoðanir sínar, þannig að það er smá von.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ef hann svarar verður það væntanlega með grein á trú.is. Sú grein mun ekki innihalda vísun á þína grein.

Matthías Ásgeirsson, 8.3.2010 kl. 18:04

2 identicon

Svarið, ef það kemur, verður líka hræðilega langt.

Steindór J. Erlingsson (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 20:06

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Já, Gunnar, ef þú ert að lesa þetta, vinsamleg ábending: reyndu að stytta aðeins það sem þú skrifar! Minna er meira. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 8.3.2010 kl. 20:38

4 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Hjalti minn á þetta ekki að vera 1. Þess. 2:15. Það hakkar enginn neitt í spað, það er sagt að eitthvað sé brytjað í spað. Hafðu það sem bezt og megi Guð minn blessa þig og þína í dag og alla þína daga.

Aðalbjörn Leifsson, 10.3.2010 kl. 09:41

5 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Aðalbjörn, ég skil ekki hvað þú átt við. Eins og þú sérð þá vísa ég í 1. Þess 2.15 og tala um að brytja í spað! ;)

Hjalti Rúnar Ómarsson, 10.3.2010 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband