7.3.2010 | 15:43
Undarlegar klippingar
Ég hef áður bent á það hversu oft Þjóðkirkjan slysast til að klippa út óþægileg vers þegar hún velur hvaða texta á að lesa upp í messum. Í útvarpsmessunni í dag var þetta lesið:
Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. Sauðunum skipar hann sér til hægri handar, en höfrunum til vinstri. Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: ,Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.` Þá munu þeir réttlátu segja: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?` Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.` (Mat 25.31-40)
Það kemur manni svo sem ekki á óvart að ríkiskirkjufólkið skammist sín fyrir síðari hluta þessarar dæmisögu, áframhaldið er svona:
Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: ,Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans. Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka, gestur var ég, en þér hýstuð mig ekki, nakinn, en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi, en ekki vitjuðuð þér mín.` Þá munu þeir svara: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki?` Hann mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.` Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs." (Mat. 25.41-46)
Af hverju gefur ríkiskirkjan ekki bara út einhverja styttri útgáfu af biblíunni þar sem hún er búin að klippa allt þetta í burtu?
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Svona einsog 100 mínútna biblían?
Þórður Ingvarsson (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 17:08
Já, góður punktur.
Annars var ég að kíkja í 100 mínútna biblíuna (keypti notað eintak á gjafaverði) og þar er þessi dæmisaga einmitt. Þar stendur þetta: "En við þá sem sátu honum á vinstri hönd sagði hann: "Allt sem þér gjörðuð ekki einum minna minnstu bræðra, það hafið þér ekki heldur gjört mér." Og þeir færu til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs."
Þannig að hún sleppir "Farið frá mér bölvaðir, beint í helvíti"-talinu, en heldur smá af ljóta talinu. Þannig að jafnvel 100 mínútna biblían er of ljót fyrir ríkiskirkjuna.
Hjalti Rúnar Ómarsson, 7.3.2010 kl. 17:52
Þetta er ekkert undarlegt það er ekki allt fagnaðarerindið boðað í þjóðkirkjunni. En til að hugga þig og aðra þá er helvíti ekki endastaðurinn, það er annar staður sem er verri og það er eldsdíkið. Helvíti er geymslustaður áður en dómurinn verður uppkveðinn.
Aðalbjörn Leifsson, 10.3.2010 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.