17.10.2008 | 17:32
Borgum ríkiskirkjunni
Samkvæmt fréttinni er Kirkjumálasjóður að krefja ríkið um hundarð milljónir króna fyrir hönd ríkiskirkjunnar. Samkvæmt heimasíðu ríkiskirkjunnar (*.pdf) borgaði ríkið 263,3 milljónir árið 2007 í Kirkjumálasjóð vegna Laga um kirkjumálasjóð, en samkvæmt þeim borgar ríkið aukalega 11,3% af sóknargjöldum fyrir hvern skráðan einstakling í ríkiskirkjunar.
Ég legg einfaldlega til að ríkið borgi kirkjunni þessar hundarð milljónir í ár, en afnemi auk þess Lög um kirkjumálasjóð. Þannig að næsta ár myndum við bara spara ~163 milljónir, en síðan 263 milljónir.
Ef kirkjan segir að hún þurfi að leggja niður einhverja bráðnauðsynlega þjónustu vegna þessarar skerðingar (þá er það auðvitað hennar mál), en ég ætla af einskærri góðvild að gefa henni sparnaðarráð. Ef hún lækkar laun presta niður í kannski, 300.000 kr eða 400.00 kr á mánuði, þá mun hún spara hundruði milljóna árlega, enda eru ríkiskirkjuprestar hálaunamenn.
En ef þú vilt gera eitthvað í málunum, þá legg ég til að þú kjósir með löppunum og segir þig úr ríkiskirkjunni, hérna eru upplýsingar um hvernig eigi að gera það.
![]() |
Kirkjan krefur ríkið um milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)