9.8.2010 | 20:42
Lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við
Í ályktun kirkjuþings segir að kirkjan vilji sættast á 5% niðurskurð ef sóknargjöld breytist ekki fyrir árið 2011. Mér finnst að ríkið eigi að koma með gagntilboð, og bara framkvæma það strax. Allt í lagi, leyfum sóknargjöldunum (sem eru ekki félagsgjöld) að standa í stað árið 2011. En við skulum einfaldlega leggja niður þau sérréttindi ríkiskirkjunnar að fá árlega 590 milljónir í Kirkjumálasjóð og jöfnunarsjóð sókna.
Ekkert svigrúm til að hlífa kirkjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Það er alls engin ástæða til að skattgreiðendur eigi að fjármagna klúbba í kringum þessi trúarævintýri. Þetta er bara enn eitt dæmið um fjársvik á mið hins opinbera sem við höfum séð.
Baldur Fjölnisson, 10.8.2010 kl. 00:57
Núna ætti eitthvað að fá fólk af rassgatinu og til að segja sig úr geimgaldrakarlsfélagi ríkisins.
Hlægileg að við hendum þúsundum milljóna í þessa aðdáendur galdrakarlsins ógurlega
DoctorE (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 07:49
Ríkið ætti nú að sjá sóma sinn í því að styrkja kirkjuna enn frekar miðað við hvernig þjóðfélagið er í dag. Það yrði mikil blessun fyrir landið að auka framlög til kirkjunnar.
Siggi (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 09:29
Siggi, hvaða innlegg og lausnir hefur kirkjan komið með í vandamál þjóðarinnar í dag?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.8.2010 kl. 09:45
Siggi er örugglega prestur...
doctore (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 12:32
Niðurskurður hjá lögreglu hefur valdið því að hún er undirmönnuð og því agressíf, úrvinda, óeinbeitt og farin að heimta vopn.
Við viljum náttúrlega ekki að prestarnir lendi í sömu stöðu.
NIðurskurður til landhelgisgæslu hefur valdið því að hún hefur neyðst til að leygja búnað og mannskap úr landi til að fjármagna sig á meðan allt rekur á reiðanum hér. Eru menn að biðja um það sama hjá kirjunni ha?
Rétt að nefna að rekstur landhelgisgæslunnar kostar ekki nema þriðjung af þessari fjarskiptaþjónustu kirkjunar við liggaliggaláið á himnum.
Menn verða líka að hafa í huga að hér er um risastórt Broadway show að ræða á árlegum basis. Showbissness er ekki gefins. Sérstaklega þegar sýnt er fyrir tómu húsi.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.8.2010 kl. 14:16
Koma þeir hérna hver af öðrum trúleysingjarnir í "heilagri" vandlætingu sinni.
Gísli Ingvarsson, 10.8.2010 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.