Mjög eðlilegt

Mér finnst ekki undarlegt að kristið fólk sé hlynntari pyntingum heldur en trúlaust fólk. Kristin trú gengur nefnilega út á að meirihluti mannkyns eigi skilið að kveljast að eilífu. Í kristinni trú er guð eiginlega alheims-pyntingameistarinn.

Ég man eftir einum stað þar sem Jesús nefnir pyntingar. Í einni dæmisögunni í Matteusarguðspjalli líkir Jesú guði við konung. Hann reiðist einum þegninum sínum og „afhenti hann böðlunum“ (Mt 18.34). Það sem er þýtt með „böðlar“ er víst í grískunni „pynturunum“ (í enskum þýðingum er oftast tormentors eða torturers).

Ef Jesús hefði verið uppi í nútímanum hefði hann líklega sagt eitthvað eins og: „Guð er eins og SS-foringi sem sendir fólk í útrýmingarbúðir.“


mbl.is Kristnir hlynntari pyntingum en aðrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband